Maya – Ladyline

66.500 kr.

Maya – Ladyline

66.500 kr.

Maya er ein af nýju 2020 hárkollunum frá Bergmann. Hún er klippt í styttur með topp fram á ennið. Lengdin á hárinu aftan á hnakkanum er í styttum og nær lengsta hárið ca. niður fyrir herðablöð. Hárið er gervi hár.
Grunnurinn er vélunnin fyrir utan hárið í framlínunni (það er við ennissvæðið). Þar hefur hárið verið handhnýtt í gegnsæjan grunn sem líkir eins vel eftir hársverði og hægt er að óska sér í hárkollu. Það loftar mjög vel um grunninn. Á innanverðum grunninum sést að það hefur verið saumaður stamur renningur ca. 2 cm fyrir ofan sitthvort eyra og einnig aftan á hálsinum.  Þessir stömu renningar gera það að verkum að  hárkollan situr enn betur á kollinum. Hárkolluna er hægt að víkka eða þrengja aftan á hálsinum á innanverðum grunninum. Þar eru 2 flipar sitthvoru megin (franskur rennilás) sem hægt er að stilla til að víkka eða þrengja.

Maya er framleidd í 9 litum. Ekki fáanleg í gráum lit.

Additional information

Litir

Sídd

Hárgerð

Framleiðandi

Flokkar