Nathalie er ein af nýju hárkollunum 2018 frá NJ-Creation. Hárið er sambland af ekta hári og gervi hári. Hárkollan er mjög létt og falleg. Hárið hefur verið handhnýtt í allan grunninn. Ofan á kollinum er gegnsær grunnur sem líkir eins vel eftir hársverði og hægt er að óska sér. Á innanverðum grunninum hefur verið saumaður stamur renningur sem ætlaður er til að hárkollan sitji betur og þéttar að kollinum. Eins og myndin sýnir er hárið ofan á kollinum slétt. Toppurinn er síður og er hárið klippt í léttar styttur þar sem lengdin nær niður fyrir eyrnasvæðið. Þetta er mjög falleg hárkolla.
Hún er framleidd í 12 litum