Um Hárkollugerð Kolfinnu Knútsdóttir

Vinsamlegast pantið tíma í síma: 511 5222

hafðu samband og við finnum tíma til að fara yfir málin með þér

Hárkollugerðin er fyrirtæki sem sérhæfir sig í þjónustu við þá einstaklinga sem af einhverjum ástæðum missa hárið með hárkollur, hártoppa og höfuðföt,stuðningsbrjóstahöld  svo eitthvað sé  nefnt.

Leikhús, kvikmynda- og auglýsingafyrirtæki geta leitað til Hárkollugerðarinnar og leigt eða keypt hárkollur, skegg, barta.

Einnig geta fyrirtæki og félagasamtök leitað til fyrirtækisins með hárkolluleigu hvað varðar skemmitatriði á t.d. árshátíðum, þorrablótum eða öðrum uppákomum fyrirtækja eða félagasamtaka.

Allar upplýsingar eru veittar í síma 511 5222

Kolfinna Knútsdóttir
Sími: 896-7222
kolfinna@harkollugerd.is

Sigurður Pálsson
Sími: 864-9222
sigurdur@harkollugerd.is

Verslun


Sími: 511-5222, 896-7222
harkollugerd@harkollugerd.is

Miðhús 44, nh.
112,  Reykjavík

Eigandi


Kolfinna Knútsdóttir

Framkvæmdastjóri

Er farðara og hárkollugerðar menntuð. Hún hefur verið starfandi við fagið síðan árið 1985 er hún lauk námi frá Complection London School of make up. Hún hefur auk þess starfað hjá Þjóðleikhúsinu í 11 ár við förðun og hárkollugerð, unnið ýmis lausastörf við förðun og hárkollugerð s.s. við sjónvarp, auglýsingar bæði blaða og sjónvarps, við heimildarþætti, kvikmyndir, kennslu ásamt fleiru Hún hefur sótt námskeið og kynningar erlendis. Hún hefur þjónustað einstaklinga sem misst hafa hárið með hárkollur og höfuðföt frá árinu 1999.

Eigandi


Sigurður Pálsson

Fjármála – Vef- og Markaðsstjóri

er viðskiptafræðingur að mennt og hefur hann yfir 25 ára reynslu af rekstri fyrirtækja og veitti hann meðal annars Bóksölu Stúdenta forstöðu yfir 20 ára skeið. Núna hefur hann söðlað um og er hann fjármálastjóri Hárkollugerðarinnar og sér hann einnig um vefsvæði fyrirtækisins ásamt markaðssetningu þess.