Cool er eins og myndin sýnir með löngu hári með liðum. Hún er með vinstri skiptingu þar sem hárið hefur verið handhnýtt í gegnsæjan grunn.Toppurinn er síður og nær ca. að axlasvæðinu og er hárið síðan klippt í styttur. Smart hárkolla sem loftar vel um og gaman að leika sér að litaflótunni sem er í boði í þessari hárkollu. Ráðleggjum við viðskiptavinum að nota eingöngu sjampó + balsam sem ætlað er fyrir gervi hár til að þvo hárkollurnar. Ekki má nota heitt sléttujárn – krullujárn eða nota hárblasara í gervi hár þar sem hárið getur bráðnað í of miklum hita, en fyrir vikið er fyrirhöfnin við að halda henni við svo til engin.
Grunnurinn er vélunnin fyrir utan hárið í framlínunni (það er við ennissvæðið). Þar hefur hárið verið handhnýtt í gegnsæjan grunn sem líkir eins vel eftir hársverði og hægt er að óska sér í hárkollu. Það loftar mjög vel um grunninn. Á innanverðum grunninum sést að það hefur verið saumaður stamur renningur fyrir ofan sitthvort eyrasvæði og einnig aftan á hálsinum. Þessir stömu renningar gera það að verkum að hárkollan situr enn betur á kollinum. Hárkolluna er hægt að víkka eða þrengja aftan á hálsinum á innanverðum grunninum. Þar eru 2 flipar sitthvoru megin (franskur rennilás) sem hægt er að stilla til að víkka eða þrengja.
Cool er framleidd í 6 litum.