Cora er ein af nýju 2016 hárkollunum frá Bergmann fyrirtækinu. Eins og myndin sýnir er hún klippt í styttur og er hárið liðað. Hún er öll vélunnin og loftar mjög vel um hana. Hún er létt og klæðileg og er hárið gervi hár. Núna er sú breyting á hárkollum frá Bergmann að saumaður hefur verið stamur renningur ca. 2 cm inn á grunnin fyrir ofan sitthvort eyra og einnig aftan á hálsinum. Þessir stömu renningar gera það að verkum að hárkollan situr enn betur á kollinum. Hægt er að víkka hana eða þrengja aftan á hálsinum.
Cora er framleidd í 22 litum.