Jana er ein af nýju 2016 hárkollunum frá Bergmann. Hárið er gervi hár og er hún klippt í mjög sportlega klippingu. Einsog myndin sýnir er hárið liðað og gefur það henni fallegt yfirbragð. Hárið ofan á kollinum er handhnýtt í gegnsæjan grunn sem líkir eins vel eftir hársverði einsog hægt er að óska eftir í hárkollu. Hún er vélunnin í hnakkann og loftar vel um hana. Núna er sú breyting á hárkollum frá Bergmann að saumaður hefur verið stamur renningur ca. 2 cm inn á grunnin fyrir ofan sitthvort eyra og einnig aftan á hálsinum. Þessir stömu renningar gera það að verkum að hárkollan situr enn betur á kollinum. Hægt er að víkka hana eða þrengja aftan á hálsinum.
Hún er framleidd í 24 litum