Harry hárkollan kemur frá bresku fyrirtæki sem heitir Dimples. Hún er afskaplega létt og falleg hárkolla þar sem hárið sem er gervi hár er handhnýtt í allan grunninn.
Hún er framleidd í einni stærð og í 22 litum. Hægt er að víkka hana eða þrengja með stillingum aftan á hálsinum.
Hárið er frekar slétt.