Samira er ný hárkolla sem Bergmann fyrirtækið var að setja á markað nú á vordögum ásins 2018.
Fyrirtækið sem er 145 ára í ár er elsta hárkollufyrirtæki heims. Af tilefni afmælisins voru að koma 5 nýjar hárkollur með gervi hári á markað. Samira er ein af þeim. Hún er mjög falleg hárkolla, hárið er liðað og axlarsítt, klippt í styttur. Ekki er toppur klipptur fram á ennið. Hárið í framlínunni er handhnýtt í gegnsæjan grunn sem líkir eins vel eftir hársverði og hægt er að vænta þegar um hárkollu er að ræða. Að öðru leyti er grunnurinn vélunninn. Inn á grunninn fyrir ofan eyrnasvæðið hefur verið saumaður stamur renningur og einnig aftan á hálssvæðinu. Hægt er að víkka eða þrengja hárkolluna aftan á hálsinum. Myndin sýnir vel hvernig klipping Samiru er og lengd hársins.
Samira er framleidd í 19 litum