Kinu er hárkolla úr gervi hári. Hún er mjög létt og hárið ofan á kollinum handhnýtt í gegnsæjan grunn sem líkir eins vel eftir hársverði og hægt er að óska eftir hvað hárkollu varðar. Hárið í hnakkanum er einnig að hluta til handhnýtt en að öðru leyti vélunnin. Það loftar vel um hárkolluna og er hægt að víkka hana eða þrengja aftan á hálsinum. Klippingin er með sportlegum stíl, toppurinn þungur fram á ennið og er hárið á hægri hlið lengra en á vinstri hlið. Myndin sýnir vel form klippingarinnar.
Kinu er framleidd í 34 litum