Chrissy hárkollan er barna hárkolla sem kemur frá bresku fyrirtæki sem heitir Dimples. Einsog sést á myndinni þá er hárið meira og minna jafnsítt ekki klipptur toppur fram á ennið. Stærðin er 49 cm. Kollstykkið er að hluta til handhnýtt í gegnsæjan grunn þar sem skipting er vinstra megin. Hún er vélunnin í hnakkann og loftar vel um hana. Hægt er að minnka hana eða stækka aftan á hálsinum. Myndin sýnir vel hvernig formið á klippingunni er.
Hárið er gervi hár og er hún framleidd í 8 litum