Nala er eins og myndin sýnir krulluð. Við ráðleggjum fyrir þá einstaklinga sem vilja halda krullunum fínum að greiða ekki eða busta heldur nota fingurna til að strjúka í gegnum krullurnar. Einnig ráðleggjum við viðskiptavinum að nota eingöngu sjampó + balsam sem ætlað er fyrir gervi hár til að þvo hárkollurnar. Ekki má nota heitt sléttujárn – krullujárn eða nota hárblásara í gervi hár þar sem hárið getur bráðnað í of miklum hita, en fyrir vikið er fyrirhöfnin við að halda henni við svo til engin.
Grunnurinn er vélunnin fyrir utan hárið í framlínunni (það er við ennissvæðið). Þar hefur hárið verið handhnýtt í gegnsæjan grunn sem líkir eins vel eftir hársverði og hægt er að óska sér í hárkollu. Það loftar mjög vel um grunninn. Á innanverðum grunninum sést að það hefur verið saumaður stamur renningur fyrir ofan sitthvort eyra og einnig aftan á hálsinum. Þessir stömu renningar gera það að verkum að hárkollan situr enn betur á kollinum. Hárkolluna er hægt að víkka eða þrengja aftan á hálsinum á innanverðum grunninum. Þar eru 2 flipar sitthvoru megin (franskur rennilás) sem hægt er að stilla til að víkka eða þrengja.
Nala er framleidd í 11 litum, ekki í gráum lit.
Einnig framleidd í stærri stærð sem er 58 cm.