Fabian hárkollan kemur frá bresku fyrirtæki sem heitir Dimples. Létt og falleg hárkolla þar sem hárið hefur verið handhnýtt í grunninn. Hægt er að víkka hana eða þrengja með stillingum aftan á hálsinum. Hárið er frekar liðað.
Fabian er framleidd úr gervi hári í 23 litum og úr ekta hári í 16 litum.