Camille er ný hárkolla frá NJ CREATION 2021. Hárið er gervi hár og er það liðað. Toppurinn er síður eins og sést á myndinni en hægt er að klippa hann þannig að hann liggi fram á ennið. Hún er með vinstri skiptingu og er hárið í skiptingunni og hárið í framlínunni „eyra til eyra og ennissvæðið“ handhnýtt í gegnsæjan grunn sem gerir hárkolluna eins eðlilega og hægt er að hugsa sér. Hnakkinn er vélunninn. Hægt er að þrengja eða víkka hárkolluna á innanverðum grunninum aftan á hálsinum. Stamur renningur er einnig á innanverðum grunninum aftan á hálsinum og frá eyrnasvæði yfir hvirfilinn. Það hjálpar til við að hárkollan sitji betur á kollinum.
Hún er framleidd í 16 litum