Anais er ný hárkolla frá NJ CREATION 2021. Hárið er gervi hár. Eins og myndin sýnir er hún klippt í styttur og er hægt að leggja toppinn fram á ennið eða leggja hann til hliðar. Stutt og sportleg klipping. Í kollstykkinu og framlínu hárkollunnar er hárið handhnýtt í gegnsæjan grunn sem gerir hárkolluna eins eðlilega og hægt er að hugsa sér. Hnakkinn er vélunnin. Hægt er að þrengja eða víkka hárkolluna aftan á hálsinum. Á innanverðum grunninum hefur verið saumaður stamur renningur sem ætlaður er til að hárkollan sitji betur og þéttar að kollinum.
Hún er framleidd í 13 litum