Lena er er sérstaklega vönduð og falleg hárkolla. Hún er ein af nýju 2016 hárkollunum frá Bergmann. Grunnurinn er heill og er nánast allt hárið handhnýtt í grunninn. Ofan á kollinum og fram á ennið er grunnurinn gegnsær svo hann líkir eins vel eftir hársverði og hægt er að óska eftir í hárkollu. Hárið er gervi hár. Eins og myndin sýnir er hárið með lyftingu og er klippingin mjög sportleg. Auðvelt er að hafa toppinn fram á ennið eða lyfta honum frá enninu eins og myndin sýnir. Hún er ein sú léttasta á markaðnum. Núna er sú breyting á hárkollum frá Bergmann að saumaður hefur verið stamur renningur ca. 2 cm inn á grunninn fyrir ofan sitthvort eyra og einnig aftan á hálsinum. Þessir stömu renningar gera það að verkum að hárkollan situr enn betur á kollinum. Hægt er að víkka hana eða þrengja aftan á hálsinum.
Lena framleidd i 15 litum