JADE er ný hárkolla frá NJ CREATION 2021. Hárið er gervi hár. Eins og myndin sýnir er hún axlarsíð, klippt í léttar styttur og er hægt að leggja toppinn til hliðar eða klippa hann svo hann falli fram á ennið. Mjög smart klipping. Í kollstykkinu og framlínu hárkollunnar er hárið handhnýtt í gegnsæjan grunn sem gerir hárkolluna eins eðlilega og hægt er að hugsa sér. Hnakkinn er vélunninn. Hægt er að þrengja eða víkka hárkolluna á aftan á hálsinum. Á innanverðum grunninum hefur verið saumaður stamur renningur sem ætlaður er til að hárkollan sitji betur og þéttar að kollinum.
Hún er framleidd í 13 litum