Ný vörulína í hárkollum frá Bergmann fyrir árið 2015

Það er við hæfi nú í upphafi nýs árs að kynna nýju hárkollulínuna 2015  frá Bergmann, þýska hárkolluframleiðandanum.

Alls 12 nýjar hárkollur. Það sem kemur ekki síst á óvart varðandi þessar nýju hárkollur er 

hárkolla sem heitir TOPAS. Með réttu er hægt að kalla hana silki hárkolluna, svo mjúk er

viðkoma hársins. 

Árið 2013 – 2014 urðu miklar breytingar á framleiðslu hárkolla úr gervi hári hjá Bergmann.

Nýtt fagfólk í hönnun og framleiðslu var leitt fram á sjónarsviðið og er nú lagt upp með það

að allar hárkollur úr gervi hári eru framleiddar með handhnýttri framlínu sem gerir það að

verkum að framlínan er eins lík hársverði og hægt er að óska sér.